Friday, 24 September 2010

Libertango players 2010-2011

LIBERTANGO

Ásta Óskarsdóttir (fiðlu)
Steinunn Atladóttir (fiðlu)
Sigrún Mary McCormick (fiðlu)
Árný Arnarsdóttir (víóla)
Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir (selló)
Sigurbjörg Inga Björnsdóttir (selló)
Sunna Friðjónsdóttir (þverflauta)
Sigurdís Sandra Tryggvadóttir (saxófónn)
Ásta Soffia (harmónikku)
Sunna Björnsdóttir (píanó)



Takk Libertango!
TAKK

Viðurkenningar skólanefndar Akureyrarbæjar

- Alberto Carmona kennari við Tónlistarskólann á Akureyri, hlaut viðurkenningu fyrir frábæran árangur og jákvæð áhrif á skólastarfið.


Laugardaginn 5. júní sl. bauð skólanefnd Akureyrarbæjar til uppskeruhátíðar í Listasafninu í fyrsta skipti, þar sem veittar voru viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur, starf, áhuga og vilja. Markmiðið er að vekja sérstaka athygli á því sem vel er gert og hvetja þá sem fyrir valinu verða til þess að halda áfram því góða starfi sem þeir eru að vinna og jafnvel gera enn betur. Viðurkenning er einnig staðfesting á að viðkomandi skóli/kennari/nemandi er fyrirmynd annarra á því sviði sem viðurkenning nær til.

Skólanefnd taldi mjög mikilvægt að uppfylla þetta ákvæði í skólastefnunni nú þar sem athyglin hefur beinst í ríkari mæli að því sem miður hefur farið í samfélaginu. Því er ástæða til að beina athyglinni að því sem vel er gert og byggir að mestu á áhuga og vilja einstaklinganna til að gera sem best úr því sem þeir hafa.

Valnefnd sem skipuð var Elínu Margréti Hallgrímsdóttur formanni skólanefndar, Guðjóni Hreini Haukssyni fulltrúa samtaka foreldra og Trausta Þorsteinssyni fulltrúa Skólaþróunarsviðs HA, fór yfir allar tilnefningar og gerði tillögu til skólanefndar sem skólanefnd samþykkti á fundi sínum þann 31. maí sl.


TAKK Libertango!
That's for all of us!

Alberto Porro Carmona

0 comments:

Post a Comment